Gleðileg Jól / Merry Christmas
Stjörnublika seld
Blæsdóttirin Stjörnublika frá Valhöll seldist fyrr á árinu.
Hún er geðgóð og hreingeng alhliðahryssa og óskum við nýjum eigendum velfarnaðra með hana,
Meistaraeinkunn í gæðingaskeiði
Embla frá Valhöll náði 7,50 í einkunn, en meistaraflokkseinkunn er 6,50 og er þetta frábær árangur fyrir 5 vetra hryssu í sinni fyrstu keppni.
Þremur klukkutímum seinna tók hún þátt í 100m skeiði og hljóp á 7,87 sek.
Það er búið að halda henni undir Spuna frá Vesturkoti og fer í sónar á fimmtudag. Það var ákveðið að „enda“ ferilinn á skeiðkappreiðum og svo á Metamóti Andvara í A-flokk.
Spennandi vetur framundan
Það er spennandi vetur framundan. Það verða fjórar hryssur úr Valhallarræktunni í þjálfun í vetur.
Búið er að frumtemja þau hross sem fara á fjórða vetur og ein þeirra er komin í áframhaldandi þjálfun til Heimsmeistarans Helgu Unu en það er rauðskjótt hryssa undan Kvisti og Nútíð frá Norður-Hvammi. Gonta Kvistsdóttir ver líka tekin inn nýlega en hú fer í þjálfun til Hans Þórs. Svo á eftir að taka Meisu Þeysdóttir inn en hún er á fimmta vetur og líka eftir að taka Snös inn.
Dögg frá Valhöll – Seld
Aðalsdóttirin Dögg frá Valhöll er seld, en móðir hennar er 1.verðlauna hryssan Skessa frá Keldulandi.
Dögg hefur hlotið 7,73 í aðaleinkunn kynbótadóms.
Kynbótadómar á HM – Video af Smá frá Þúfu
Nú eru kynbótadómar á fullu á HM i Austurríki.
Rauðhetta frá Kommu er efst í flokki 6 vetra hryssna með 8,45 í aðaleinkunn og Smá frá Þúfu er efst í 5 vetra flokki með 8,32 í aðaleinkunn. Báðar hækkar þessar hryssur frá þvi á Landsmóti.
Það vekur athygli að enn og aftur hrynja Sænsku hrossin þegar á HM er komið en tvær sænskar hryssur eru þegar búnar. Meyla från Jemthagen lækkar frá því í vor úr 8,80 fyrir hæfileika í 7,98 og Ásdís från Knutshyttan lækkar úr 8,58 í 8,00 fyrir kosti. Hvað er að gerast í Svíþjóð þegar þetta gerist hvert Heimsmeistaramótið af öðru??
Við óskum íslensku keppenunum velfarnaðar
Embla frá Valhöll með 8,23 í aðaleinkunn
Embla frá Valhöll endaði í 12.sæti af 60 hryssum í 5 vetra flokki á LM201.
Hún hlaut 8,23 í aðaleinkunn. 8,5 fyrir tölt 8,0 fyrir brokk og 9,5 fyrir SKEIÐ.
Embla fer í sumar undir hest.
Það er sonur minn Owen Rúna sem á hryssuna.
Systir hennar Meisa frá Valhöll er að mörgu leiti lík henni og stefnt er með hana í dóm næsta vor. Lesa meira »
Flott sýning á Selfossi
Í dag lauk fyrstu kynbótasýningu á Selfossi síðan 1981 eða í 30 ár.
Margt hefur breyst á þeim tíma en sýningin tókst að flestra mati vel.
Sýnd voru um 50 hross en hér er sýningarskráin: Lesa meira »
Nátthrafn vann- Video af Herjólfi
Margir biðu spenntir eftir Herjólfi frá Ragnheiðarsstöðum nú í kvöld en hann hefur verið mikið í umræðunni allt frá því að byrjað var að temja hann í fyrravetur.
Herjólfur er undan Hendingu frá Úlfsstöðum og Gígjari frá Auðsholtshjáleigu.
Úrslitin urðu eftirfarandi í Töltinu:
A-úrslit
1. Halldór Guðjónsson og Nátthrafn frá Dallandi – 9,22
2. Sigurður Sigurðarson og Kjarnorka frá Kálfholti – 8,78
3. Sara Ástþórsdóttir og Díva frá Álfhólum – 8,56
4. Hinrik Bragason og Sveigur frá Varmadal – 8,22
5. Þorvaldur Árni Þorvaldsson og Smyrill frá Hrísum – 7,94
B-úrslit
5. Þorvaldur Árni Þorvaldsson og Smyrill frá Hrísum – 8,11
6. Erla Guðný Gylfadóttir og Erpir frá Mið-Fossum – 8,06
7. Jakob Svavar Sigurðsson og Alur frá Lundum II – 7,78
8. Sigurbjörn Bárðarson og Jarl frá Mið-Fossum – 7,61
9. Eyjólfur Þorsteinsson og Klerkur frá Bjarnanesi – 7,61
Álitlegir Stóðhestar
Undirritaður hefur verið að setja saman Stóðhestablað Eiðfaxa undanfarið og tekið myndir af nokkrum þeirra.
Þetta er spennandi tími þar sem miklar vonir og væntingar eru til hrossa þeirra sem stefnt er með í dóm.
Hér fyrir neðan eru myndir af nokkrum þeirra hesta sem myndaðir hafa verið undanfarna daga.
Hér eru myndir af Heim frá Votmúla Kveikssyni undan Nútíð frá Votmúna sem er 1.verðlauna hryssa undan Hrafni frá Holtsmúla og Dúnu frá Stóra Hofi.
Sá rauði heitir Barði frá Laugrabökkum undan Þokka frá Kýrholti og Birtu frá Hvolsvelli sem er 1.verðlauna Orradóttir.
Seinni brúni hesturinn heitir Alvar frá Pulu undan Orra og Yrsu frá Skjálg (bróðir Arons).
Lesa meira »






