Stóðhestadagurinn 2007

16/04/2007 kl. 13:31

Stóðhestadagurinn í Halakoti og Langholti heppnaðist vel og vorum við heppin með veður, en ekki leit vel út með það á föstudaginn.
Byrjað var á kennslusýningu sem þeir Einar Öder og Erlingur Erlingsson stóðu fyrir. Svo var dagurinn formlega settur og heimasíðurnar www.foli.is og www.godhestar.is opnaðar. Svo voru stóðhestar kynntir á veginum milli Halakots og Litla-Ármóts. Alls komu fram um 20 stóðhestar á öllum aldri.

Þvímiður var biðlund gesta ekki meiri en svo að margir mistu af hestum sem voru aftarlega í sýningarröðinni, en Vísir frá Syðri Gróf átti frábæran dag og gæðingurinn Blær frá Torfunesi sýndi fáséða takta þar sem hann sýndi ganggetu sem fáir stóðhestar ef þá nokkur hefur. Ljóst er að hann er að komast í sitt besta form.

Lesa meira »