Nýr hestur á http://www.foli.is/ er Víglundur frá Feti. Móvindóttur gæðingur af göfugum ættum.
Víglundur er bæði með fyrstu verðlaun fyrir kosti (8,34) og sköpunarlag (8,00). Hann er undan Vonini frá Feti og er því sammæðra heimsmeistaranum Marel frá Feti sem hlaut 8,39 í aðaleinkunn.
Faðir Víglunds er Atlas frá Feti sem hefur hlotið 8,22 í aðaleinkunn og er albróðir Surtseyjar frá Feti
Móðir Víglunds, Vonin frá Feti er 1.verðlauna móvindótt Kraflarsdóttir og er alsystir Hlínar frá Feti (8,39) sem einnig er heimsmeistari og má því segja að Víglundur sé af sannkölluðu heimsmeistara kyni.
Víglundur hefur einnig staðið sig vel í B-flokki gæðinga en hann hefur tvisvar keppt í B-flokki og komist í úrstlit í bæði skiptin. Í fyrra skiptið fékk hann í úrslitunum 8,60 og í seinna skiptið fékk hann 8,90.
Víglundur er afar geðgóður, viljugur gæðingur af góðum ættum

Hleð inn...