Nýjasti stóðhesturinn á síðunni er Borði frá Fellskoti.
Borði var sýndir 4.vetra í 1.verðlaun og hlaut 8,24 í aðaleinkunn (klárhestur) og þar af 9,5 fyrir tölt og 9,0 fyrir brokk, stökk, vilja/geðslag og fegurð í reið.
Móðir Borða er Þorradóttirin Sokkadís frá Bergsstöðum en faðirinn er Hugi frá Hafsteinsstöðum sem sýndur var til heiðsursverðlauna fyrir afkvæmi á síðasta Landsmóti.
Nýverið var Borði seldur og er nýr knapi hans heimsmeistarinn í gæðingaskeiði Sigursteinn Sumarliðason.
Stefnt er með Borða í B-flokk í vor og stefnan tekin á Landsmót í sumar. Auk þess er einnig opinn sá möguleiki að koma aftur fram með hann í kynbótadóm en eins og fyrr sagði var hann sýndur aðeins 4.vetra gamall.

Hleð inn...