Álmur frá Skjálg

11/04/2008 kl. 19:03

Nýr hestur hefur hefur komið fram og kom það mér mikið á óvart gæði gangtegunda hans og fas. Álmur heitir hann og er frá Gunnari “Kokk” Friðþjófssyni sem býr á Skjálg í Ölfusi. Mörg góð hross hafa komið úr hans ræktun m.a. Gandur frá Skjálg sem var annar á LM 1994 í 4.vetra flotti, Iða frá Skjálg alsystir Gands og Yrsa frá Skjálg móðir Arons frá Strandarhöfði. En Vár frá Skjálg er systir þeirra og eru öll þessi hross eru undan gæðingamóðurinni Skör frá Skjálg. Vár móðir Álms er dóttir Sörla frá Búlandi sem var þriðji í elsta flokki stóðhesta á FM 1991, en Sörli er sonur Kolfinns frá Kjarnholtm. Gaman er jafnframt að geta þess að hinn þekkti gæðingur Fluga frá Valshamri er elsta afkvæmi undan Skör frá Skjálg. Faðir Álms er Trúr frá Kjartansstöðum sem er albróðir Töfra frá Kjartansstöðum.

Á bakvið standa afrekshross m.a. Náttfari, Sörli frá Búlandi, Óður frá brún, Kolfinnur, Terna frá Kjartansstöðum, Skör frá Skjálg og Smella frá Hvolsvelli.