Það hefur gengið vel fram að þessu hjá þeim stóðhestum sem sónað hefur verið frá. þann 14.ágúst var fyrsta sónarskoðun á hryssum hjá Kvisti frá Skagaströnd, en hann hafði þá verið um fimm vikur í hryssunum og því hægt að staðfesta fyl í þeim hryssum sem fengu ca. fyrstu þrjár vikurnar. Alls var hægt að staðfesta fyl í 26 hryssum en fleiri voru líklegar. Nokkrum hryssum var svo bætt við og er útlit fyrir að hann nái að fylja um 60-70 hryssur (í húsmáli, fyrra og seinna gangmáli). Hann er mjög vel frjósamur en í fyrra fyljaði hann allar þær hryssur sem til hans komu utan eina.
Gengur vel að fylja
Stóðhestadagurinn 2008
Stóðhestadagurinn heppnaðist vel í alla staði en eins og gefur að skilja þá áttu ekki allir hestarnir sinn besta dag enda enn langt í syningar og landsmót. Stefnt er með flesta þessa hesta á LM. Þrír hestar á fjórða vetur en það var Illingssonurinn Bliki frá Nýjabæ, Þóroddssonurinn Grunnur frá Grund II og Skjálfti frá Bakkakoti sem er undan Sæ frá Bakkakoti. Einn ósýndur hestur á fimmta vetur kom fram en það er Álmur frá Skjálg, efnilegur alhliðahestur undan Trú frá Kjartansstöðum. Það voru nokkrir hestar á fimmta vetur sem komu fram m.a. Vignir frá Selfossi sem var annar af tveimur hæst Lesa meira »
Hleð inn...