Fyljun 2008

19/12/2008 kl. 14:20
Krummi frá Blesastöðum í Hafnarfirði 2008

Krummi frá Blesastöðum

Fyljun árið 2008 var prýðileg hjá þeim stóðhestum sem voru á vegum Foli ehf sumarið 2008. Þeir hestar sem voru í notkun voru Kvistur frá Skagaströnd, Auður frá Lundum II, Álfur frá Selfossi, Sædynur frá Múla og Krummi frá Blesastöðum.

Álfur var í sæðingum í Langholti og fór svo í girðingu í Grafarkot í Húnavatnssýslu. Tæplega 90 hryssur komu til sæðingar og var fanghlutfallið um 75% sem telst vel viðunandi en taka skal tillit til þess að fleiri „vandamálahryssur“ koma til sæðingar en að jafnaði í girðingar. Fyljun í Grafarkoti var samkvæmt mínum fréttum góð en hef ekki fengið nákvæmar tölur yfir það. Af þekktum hryssum voru hjá Álfi Lesa meira »

Fínn LM-diskur

13/12/2008 kl. 14:48

Nú er kominn út DVD diskum með kynbótahrossum á LM 2008 og er diskurinn enn betri en sá sem kom eftir LM 2006. Kynningin á hrossunum er  mun betir og gæði myndarinnar betri en fyrr.

Þetta er frábært framtak hjá Sveini og félögu í Plúsfilm og eiga þeir hrós skilið fyrir framtakið. Þeir hestar sem eru á vegum Foli ehf komu fínt út en auðvitað finnst hverjum sitt um hvað er best. Þeir hestar sem sýndu óþægð í brautinni njóta þess að sjálfsögðu þegar búið er að klippa endana af og það er orðið löngu þekkt að annað mat er oft á þáttum eins og útgeislun, hraða og fleiru slíku ef horft er á í brautinni eða í sjónvarpi.

Nú er það bara að leggjast yfir diskana yfir hátíðarnar og melta þessi gæðahross með jólasteikinni. Framundan er nýtt kynbótaár og spennandi vetur og vor framundan fullt af væntingum og rafmagnaðri spennu.

Ný og betri www.foli.is

09/12/2008 kl. 6:30

Nú hefur heimasíðan verið betruð og bætt en tilgangurinn er að gera síðuna aðgengilegri og fullkomnari. Hún er gerð í hugbúnaði sem kallast WorldPress og er vinnsla síðunar þannig að jafnvel hálfgerður tölvuklaufi eins og undirritaður getur gert allt sem þarf.

Það var Sigurður Sigbjörnsson frá Lundum II sem á veg og vanda af uppsetningu og hönnun síðunar en hann hefur verið minn maður í þessum málum frá upphafi foli.is og hefur hann unnið Lesa meira »

Afkvæmi Blæs og Álfs

08/12/2008 kl. 17:35
Blær frá Hesti

Blær frá Hesti

Þetta er skemmtilegur tími þegar verið er að byrja að temja hross undan þeim hestum sem Foli ehf hefur haft í boði undanfarin ár. Nokkur afkvæmi undan Blæ frá Hesti eru búin að vera í frumtamningu nú í haust, ein hryssa var hjá Ella og Viðju í Langholti og létu þau vel af henni en Elli sýndi Blæju frá Hesti í 1.verðlaun fyrir tveimur árum. Ekki er mikið til undan Blæ en þetta er samt stærsti árgangurinn undan honum til þessa. Jói G á Borg var með eina undan Blæ sem hann segir mikið hestefni. Undirritaður á þrjár Blæsdætur en tvær þeirra voru hjá Jakobi Sig í Steinsholti og komu fínt út og ein var hjá Hans Þór í Strandarhöfði og lét hann frekar vel af henni. Þær eru allar fallega gengar, viljugar og alhliða gengar. Ég veit einnig um tvær hryssur frá Dalbæ enhef ekki heyrt af þeim enn. Það verður spennandi að sjá hvað þessi árgangur gerir undan Blæ Lesa meira »