Mér hlaust sá heiður að taka saman stiklur um ræktun Magnúsar Einarssonar í Kjarnholtum I. Ég tók vel í þá bón en þetta var mun meiri vinna heldur en ég gerði mér grein fyrir. Þrátt fyrir það var þetta hin besta skemmtun og er ég margs vísari eftir en áður.
Magnús hóf ræktun um 1970 og fyrsta hrossið skv. WF var Svala frá Kjarnholtum I, en hann er löngu landsþekktur ræktandi og hefur haft mikil áhrif á íslenska hrossarækt. Hann hefur ræktað um 200 hross og þar af hafa 26 hross hlotið 1.verðlaun. Hann var kosinn ræktunarmaður ársins 1994. En til gamans má geta þess að hross frá Kjarnholtum I hafa verið sýnd 231 sinni í kynbótadómi.
Það sem einkennir hrossarækt Magnúsar er hve margir stóðhestar sem hafa fengið notkun. Til að sýna það þá setti ég saman þennan Lesa meira »

Hleð inn...