Fleiri Álfsbörn

27/02/2009 kl. 10:10
Álfssonur frá Leiðólfsstöðum

Álfssonur frá Leiðólfsstöðum

Ég sá mynd af fola undan Álfi sem er frá Leiðólfsstöðum en myndir af honum eru á heimasíðunni www.fakur.is en hann er undan hryssunni Sólvá frá Akureyri.

Þetta er myndband af stóðhestinum Kalda frá Meðalfelli. Hann er að sögn um tveggja mánaða taminn Álfssonur og undan Heiðarsdótturinni Kleó frá Meðalfelli. Hann er mjög rúmur á tölti og brokki. geðgóður og þjáll. Stefnan er sett á kynbótasýningu í vor.

Ég þakka Viðari Steinarssyni á Kaldbak kærlega fyrir sendinguna en nánar er hægt að fylgjast með þessum fola á heimasíðunni www.kaldbakur.is

Álfsbörn - myndir feb 2009

24/02/2009 kl. 22:50
Álfsbörn á 4.vetri

Álfsbörn á 4.vetri

Fyrstu afkæmi Álfs frá Selfossi eru í tamningu og fara vel af stað, en eins og lofað var þá var ætlunin að birta myndir hér á síðunni af afkvæmum hans sem teknar voru þegar Christina Lund eigandi hestsins var á ferð hér á landi á dögunum.

Byrjað er að taka á móti pöntunum undir stóðhestinn Álf en hann verður á suðurlandi allt næsta sumar.

Virðist Álfur erfa vel mýkt og fótaburð sem hann er orðinn landsþekktur fyrir en flest afkvæma hans eru stærri en hann sjálfur þó svo hann teljist ekki lítill hestur (142 cm á herðakamb).

Geðslag tryppanna er frábært og tala tamningarmenn þeirra um mikinn mjög þjálan vilja og mikinn kjark. Lundin er Lesa meira »

Kvistur frá Skagaströnd - Pantanir

20/02/2009 kl. 16:47

Byrjað er að taka á móti pöntunum undir stóðhestinn Kvistur frá Skagaströnd en hann verður á suðurlandi allt næsta sumar.

Kvistur er hæst dæmda afkvæmi heiðursverðlaunahestsins Hróðurs frá Refsstöðum. Hróður hefur gefið mjög athyglisverð hross eins og Hóf frá Varmalæk, Fjólu frá Kirkjubæ, Leistu frá Lynghóli auk þess að hafa slettuskjóttan erfðavísi sem gefur möguleika á sjaldgæfum litum eins og jarp- og brúnblesóttu. Móðir Kvists er úrvalshryssan Sunna frá Akranesi. Fimm af sex afkvæmum hennar sem sýnd hafa verið í dómi hafa hlotið 1.verðlaun en ekkert þeirra eru undan sama hestinum sem sýnir kynfestu hennar. Meðaleinkunn afkvæma hennar fyrir sköpulag er 8,12 fyrir hæfileika 8,30 og í aðaleinkunn 8,25. Fremst fara þar Kvistur og Þjóð sem var í 1-2 sæti í 4.vetra flokki hryssna á LM 2006.
Kynbótamat hans er 127 og ein hann einn örfárra stóðhesta sem hefur hlotið 9,0 fyrir tölt, brokk og Skeið aðeins 5.vetra. Framtíðin er björt og stefnan er sett á LM 2010. Ljóst er að hér fer einn álitlegasti ræktunarhestur landsins.

Áhugasömum er bent á pantanir hér á síðunni en eingöngu er hægt að panta á netinu. PÖNTUNAREYÐUBLAÐ

Álfur frá Selfossi - Pantanir

kl. 15:04
Álfur á LM2006

Álfur á LM2006

Byrjað er að taka á móti pöntunum undir stóðhestinn Álf frá Selfossi en hann verður á suðurlandi allt næsta sumar. Fyrstu afkæmi hans eru í tamningu og fara vel af stað, en fljótlega verða birtar myndir hér á síðunni af afkvæmum hans sem Christina Lund eigandi hestsins tók á ferð sinni hér á landi á dögunum.

Virðist Álfur erfa vel mýkt og fótaburð sem hann er orðinn landsþekktur fyrir en flest afkvæma hans eru stærri en hann sjálfur þó svo hann teljist ekki lítill hestur (142 cm á herðakamb).

Álfur hefur hlotið fyrir Sköpulag 8.11, fyrir hæfileikar 8.69 og í Aðaleinkunn 8.46 þar af 9,5 fyrir tölt, Vilja/geðslag og feg.reið hann er klárlega í fremstu röð klárhesta.

Áhugasömum er bent á pantanir hér á síðunni en eingöngu er hægt að panta á netinu. PÖNTUNAREYÐUBLAÐ

Ótrúlegt atvik hjá Meistaradeild VÍS

03/02/2009 kl. 18:11
Breiðfylkingin fer í gegnum ísinn

Breiðfylkingin fer í gegnum ísinn

Maður ætlaði varla að trúa þeim fréttum sem heyrðust í dag að 12 hestar og knapar hafi lent ofan í tjörninni þegar þeir voru að ríða lokaatriði á blaðamannafundi sem kynna átti Meistaradeild VÍS. Knaparnir riðu hestum í breiðfylkingu og við það gaf ísinn á tjörninni sig með þeim afleiðingum að knapar og hestar lentu úti.

Það fór sem betur fer svo að enginn hestur né knapi er alvarlega meiddur en það getur tekið hesta talsvert langan Lesa meira »

Gustur frá Hóli - heimsókn að Lundum II

kl. 15:09
Owen og Aaron á Gusti frá Hóli

Owen og Aaron á Gusti frá Hóli

Það er svo sem ekki mikið að frétta nú þessa daganna en það er búfjáreftirlit sem hefur tekið mestan tíma undanfarnar vikur.

Ég fór um daginn upp í Borgarfjörð og fór m.a. til Jakobs Sig með Blæsdóttirina Rausn frá Valhöll (skuttlaði einnig Blæsdótturinni Nótt frá Valhöll í Andvara til Ævars Arnar) og fór svo að Lundum II til Sigbjörns og Rögnu. Þau tóku vel á móti okkur eins og sveitamanna er siður og auðvita fórum við út í hesthús að líta yfir. Inni voru bæði gömul hross og yngri en mesta athygli vakti Gustur frá Hóli 20 vetra höfðingi og fengu tvíburarnir (Owen og Aaron) að far á bak enda hafa þeir miklar skoðanir á hrossarækt og fara ekki á bak hverju sem er.  Gustur hefur “átt heima” að Lundum um tíma og er hesturinn í flottu formi miðað við aldur. Sigbjörn sýndi okkur einnig Lesa meira »