Benmedia - upptökur -Asi frá Lundum II

24/05/2009 kl. 12:32

Frumkvöðullinn Daníel Ben hefur ákveðið að taka upp allar kynbótasýningar á suðurlandi þetta vorið. Þetta er bæði þröf þjónusta þar sem að ekki geta allir séð allar sýningar sem það vildi sjá og líka er þetta dýrmæt heimild um þau hross sem sýnd eru. Hægt er fyrir hesteigendur að kaupa myndband tilbúið að DVD diski þar sem hrossið er bæði í dómnum og á yfirliti.

Stóðhesturinn Asi frá Lundum II sem verður á vegum www.foli.is er einn af þeim stóðhestum sem sýndur var í Víðidal. Myndband af honum er eitt af þeim myndböndum sem eru sýnd sem sýnishorn af því sem í boði er hjá benmedia.is. Myndbandið er hægt að skoða hér

Oft geta ræktendur aðeins séð hross á yfirliti og stundum myndar fólk sér skoðun á hrossum byggða á þeirri sýningu en oft eru hross ekki að sýna það sama á yfirliti eins og það sýndi í dómnum. Oft eru knapar að leggja áherslu á allt aðra þætti hjá hrossinu á yfirliti. En með því að til sé upptaka af hrossinu í dómnum þá er auðveldara fyrir hesteigandan að birta á t.d. heimasíðu sinni hvernig hrossið var bæði í dómnum og á yfirliti.

Frábært framtak hjá Danna og um að gera fyrir alla að nýta sér þessa þjónustu og tryggja að þessu þjónusta sé komin til að vera.

Asi frá Lundum II í Víðidal

15/05/2009 kl. 0:42

Búið er að dæma Asa frá Lundum II en hann stendur efstur í 4.vetra flokki stóðhesta fyrir yfirlit en það hefst í fyrramálið kl.10:00. Asi hlaut frábæra einkunn fyrir sköpulag 8,50 og 8,05 fyrir hæfileika en það er nú frábært af 4.vetra klárhesti.

Asi er undan Kolfinnssyninum Bjarma frá Lundum II og Móðir hans er Auðna frá Höfða en það hafa þrír flottir stóðhesta sem komu fram undan henni  þeir Auður, Arður og Alur. Þetta sýnir að þar er á ferðinni frábær ræktunarhryssa. Þarnar parar Sigbjörn saman ræktunarlínunum sem best hafa reynst á Lundum þ.a.s. Auðnu frá Höfða og Sóleyu frá Lundum II og er árangurinn frábær.

Það verður gaman að fylgjast með hvað Asi gerir á morgu á yfirliti en það er ljóst að þarna er á ferðinni athyglisverður stóðhestur af frábæru kyni.

IS2005136409 Asi frá Lundum II
Litur: 3440 Jarpur/rauð- tvístjörnótt
Ræktandi: Sigbjörn Björnsson
Eigandi: Sigbjörn Björnsson
F: IS2001136413 Bjarmi frá Lundum II
Ff: IS1981187020 Kolfinnur frá Kjarnholtum I
Fm: IS1989236410 Sóley frá Lundum II
M: IS1995236220 Auðna frá Höfða
Mf: IS1983158500 Stjarni frá Vatnsleysu
Mm: IS19AB236146 Brúnka frá Höfða
Sköpulag: 8,5 - 8,5 - 9,5 - 9,0 - 7,5 - 8,0 - 8,5 - 9,0 = 8,50
Hæfileikar: 8,5 - 8,5 - 5,0 - 8,5 - 8,5 - 9,0 - 8,0 = 8,05
Aðaleinkunn: 8,23
Sýnandi: Jakob Sigurðsson

Húsmál að fara á fullt

11/05/2009 kl. 18:33

Nú er húsmál hjá stóðhestum að fara á fullt en þeir hestar sem eru í boði hjá foli.is eru Kvistur frá Skagaströnd, Álfur frá Selfossi, Baugur frá Víðinesi og Bjarmi frá Lundum II. Ágústínus verður á húsi hjá Daníel Jónssyni á Pulu í Holtum en Asi frá Lundum II hjá Jakobi Sig í Steinsholti í Borgarfirði.

Hryssueigendur sem ætla að halda undir þessa hesta á húsi eru beðnir að hafa samband í síma 866-1230 en best er að vita nokkuð vel hvenær hryssan er í látum til að auka líkur á að hún haldi og til að minnka álag á stóðhestunum.

Ágústínus frá Melaleiti - nýr hestur á foli.is

04/05/2009 kl. 14:54
Ágústínus á LM2008

Ágústínus á LM2008

Ágústínus frá Melaleiti er nýr hestur á foli.is en hann var fjórði á LM2008 í 6.vetra flokki stóðhesta. Hann er mjög vel ættaður en faðir hans er heiðursverðlaunahesturinn Kolfinnur frá Kjarnholtum, en móðirin er Gnótt frá Steinmóðarbæ sem er einnig móðir 1.verðlauna stóðhestanna Erils frá Kópavogi og Gasalegs-Hellings frá Hofsósi.

Drótt frá Kópavogi móðir Krafts frá Efri-Þverá er líka undan Gnótt. Þetta sýnir að á bakvið Ágústínus eru frábærar gæðingsættir. Lesa meira »

Ræktun - vel heppnuð sýning

kl. 13:38
Njáll frá Hvolsvelli

Njáll frá Hvolsvelli

Hin árlega reiðhallarsýning Hrossaræktarsamtaka Suðurlands var haldin föstudaginn 24.apríl s.l. en samtökin hafa staðið að þessari sýningu síðasta laugardag í apríl en þetta árið var sýningin færð fram á föstudags vegna Alþingiskosninganna.
Á sjötta hundrað áhorfanda mættu og var stemmingin frábær. Að venju byggist þessi sýning upp á ræktunarbússýningum, afkvæmasýningum og einstaklingum í röðum stóðhesta og hryssna. Þau ræktunarbú sem kynntu ræktun sína voru Auðsholtshjáleiga, Dalland, Kjarr, Ketilsstaðir, Þjórsárbakki, Ragnar Ágústsson, Ingólfshvoll, Álfhólar, Stuðlar og Kaldbakur. Þessir hópar kynntu mjög vel hvað er í gangi í hrossarækt og tamningum á Suðurlandi og fjöldi frábærra gripa komu þar fram.

Afkvæmahópar voru nokkrir, en nokkur afkvæmi Stála frá Kjarri komu fram, dætrahópur Kjarna frá Þjóðólfshaga, afkvæmi Vár frá Skjálg, Þernu frá Arnarhóli, Væntingar frá Voðmúlastöðum, þrír synir Ljónslappar voru í Ketilsstaðahópnum Lesa meira »