Álfur, Kvistur og Ágústínus í hólf

19/06/2009 kl. 11:52

Nú er komið að því að sleppa stóðhestum í hólf en Álfur frá Selfossi verður í Laugardælum, Kvistur frá Skagaströnd verður á Langstöðum og Ágústínus frá Melaleiti verður í Auðsholti.
Tekið verður á móti hryssum föstudaginn 19.júní og laugardaginn 20.júní undir undir Álf Kvist og Ágústínus.

Asi frá Lundum II er á leiðinni á Fjórðungsmót en kemur á suðurlandið strax eftir það eða um 7.júlí.

Þeir sem eiga pantað undir þessa hesta vinsamlegast hafið samband í síma 866-1230

Óðinn Örn Jóhannsson
www.foli.is