Sónarskoðað var frá Kvisti frá Skagaströnd í gær þriðjudaginn 28.júlí
Alls voru 32 hryssur skoðaðar en hægt var að staðfesta fyl í 25 þeirra sem er um 80%. Kvistur fór í hryssur 23.júní og var því búinn að vera um 5 vikur í hópnum. Nokkara hryssur til viðbótar mjög líklega fengnar en með of ung fyl til að hægt væri að staðfesta fylið hjá þeim og verða þær því áfarm hjá hestinum þar til næst verður sónað.
Gaman er að geta þess að 20.vetra hryssa undan Hrafni frá Holtsmúla var meðal þeirra sem skoðaðar voru, en hún hefur aldrei átt folald. Þetta er sannkallaður reglubrjótur þar sem ekki er hægt að gera ráð fyrir því að fyl komi í svo aldna hryssu sem ekki hefur verið í folaldseign.
Kvistur er klárlega mjög frjósamur, er næmur á hvenær hryssurnar eru í egglosi. Þetta gerir hann án þess að halda hryssunum samnan eða eiða mikilli orku til þessa.
Ráð er fyrir því gert að næsta skoðun verði eftir um 4 vikur eða um 25.ágúst. En þá verður langt liðið á sumarið og við því að búast að sumir hryssueigendur vilji ekki halda hryssum sínum svo lengi undir stóðhesti til að fá ekki folöld seinni hluta sumars á næsta ári. Reyndar skiptir það orðið minna máli með þeim aðbúnaði sem að flestir hesteigendur hafa búið hrossum sínum nú á dögum.
Fjöldi manns var við sónarskoðunina og gekk hún fljótt og vel. Líney kom færandi hendi og mætti á staðinn með brauðtertu og aðrar Hnallþórur eins og henni einni er lagið. Heimafólkið Ingibjörg, Sigurbára, Ágúst og Einar sáu til þess að allt gekk hratt og vel. Sveinn Ingi og sonur hans Friðþór mættu að sjálfsögðu, en það var Guðmar dýralæknir sem sónaði fyrri helminginn en hann var leystur af vegna anna og tók þá Mía við. Fór öllu þessu fólki verk sín frábærlega úr hendi. Eiga þau öll þakkir skyldar fyrir vel unnin störf en sérstaklega vil ég þakka fyrir þær frábæru veitingar sem þau hjónin Sveinn og Líney buðu upp á.





Hleð inn...