Kvistur - Síðasta sónarskoðun

03/10/2009 kl. 8:08

Síðasta sónarskoðun ársins fer fram á Langsstöðum í Flóa sunnudaginn 4.október n.k. og hefst kl 14:00. Það eru hryssur sem hafa verið hjá Kvisti frá Skagaströnd en það er búið að vera nóg að gera hjá honum í sumar og fyljunin mjög góð.

Stefnan er svo tekin á LM2010 í Skagafirði í elsta flokk stóðhesta. Gaman verður að fylgjast með honum í vetur en einnig verður bróðir hans í tamningu en það er Kompás frá Skagaströnd undan Sunnu og Hágangi frá Narfastöðum. Það er mjög álitlegur foli sem hefur staðið framarlega á ungfolasýningum.

Nánari upplýsingar í síma 8661230