Stólpahryssan Auðna frá Höfða kastaði í sumar hestfolaldi undan Kvisti frá Skagaströnd. Folaldið er brúnblesótt og það er spennandi að fá toppættaðan hest í stóðhestaflóru framtíðarinnar. Eins og flestir ræktendur vita þá hefur Auðna skilað mjög álitlegum stóðhestum Arði, Auð og Asa. Ef að líkum lætur ætti þarna að vera á ferðinni álitlegur stóðhestur framtíðarinnar enda er Kvistur af mörgum talinn einn af mest spennandi stóðhestum af ungu kynslóðinni.
Folaldið hlaut nafnið Alexander frá Lundum II og samkvæmt áræðanlegum heimildum er víst búið að sækjast eftir leigu á honum nú þegar þrátt fyrir ungan aldur. Þegar Auðna var hjá Kvisti þá fylgdi henni líka hestfolald en það er brúnn hestur undan Vilmundi frá Feti sem ber nafnið Abraham frá Lundum II. Þetta eru stórkostleg nöfn á ættmikla hesta og gaman verður að fylgjast með þeim í framtíðinni.
Einnig verður spennandi að sjá Asa og Auð í vor. Jafnframt er spennandi að sjá hvort eitthver afkvæmi Kvists komi til dóms en örfá afkvæmi hans eru komin á tamningaraldur.

Hleð inn...