Nú er húsmáli lokið hjá Ágústínusi og gekk það fínt. Stór hópur hryssna býður hans nú á Langsstöðum en kjaftfullt er undir hestinn og því miður komast núna færri að en vilja undir þennan mikla gæðing. Ljóst er að hann er orðinn einn af vinsælustu hestum landsins í dag og hlýtur það að teljast gott því að alhliðahestar gerast vart betri en hann.
Í kynbótadómi hlaut Ágústínus 8,93 fyrir kosti en samt er það flestra mat sem hafa séð hann hjá Daníel að hann hefur tekið áframhaldandi þjálfun mjög vel og hefur hann bætt sig talsvert frá því að hann var sýndur þá 6.vetra, enda er það oft með afkomendur Kolfinns að þau eru að bæta sig langt fram eftir aldri og oft best um 8 vetra aldurinn.
Það verður gaman að sjá þá félagana koma fram á næsta ári en stefnan er tekin á A-flokk á LM2011 og mögulega að sýna hann einnig á kynbótabrautinni.
Vegan mikilla vinsælda verður fyrsta sónarskoðun undan honum um mánaðarmótin Júlí/ágúst en fram að því er allt lok og læs en áhugasömum ræktendum er bennt á að fylgjast með hér á síðunni hafi þeir áhuga á að koma hryssu undir hann um mánaðarmótin.
Upplýsingar veitir Óðinn í síma 866-1230
Hleð inn...