Spennandi vertíð er að komast á fullt í hestamennskunni enda er spennandi Landsmótsár framundan. Í dag fór ég á fyrstu vetrarleika Geysis sem var haldnir í reiðhöllinni á Gaddstaðaflötum.
Hestakosturinn var mjög góður og ljóst að hart verður barist þetta árið eins og undanfarin ár.
Nokkrir hestar vöktu athygli mína en það voru Ringó frá Kanastöðum en hann var setinn af Dagbjörtu Hjaltadóttur og sýndi hún hestinn með stakri prýði.
Daníel Jónsson sýndi Font frá Feti af stakri prýði en hesturinn hefur ekki komið betri fram um langt skeið og hefur hann fallið í hálfgerða gleymsku en hann er vel ættaður (undan Roða frá Múla og Vigdísi frá Feti) flugrúmur og hreingengur.
En hestur mótsins var að mínu mati Dans frá Seljabrekku sýndur af Lenu Zelinski, en formið og fótaburðurinn er með því besta sem hægt er að ímynda sér þó svo að finna megi að því að hann mætti vera öruggari á yfirferðinni. Dans er undan Huginn frá Haga og Dögg frá Hjaltastöðum. Það eru fáir knapar sem forma hross í betri höfðuburð og Lena og er það að verða nokkurs konar einkenni á reiðmennsku hennar eins og Gola frá Þjósárbakka ofl.
Þetta var fínt mót hjá Geysismönnum sem gekk hratt og vel. Aðstaðan og veitingarnar úrvals.
Fín byrjun á keppnistímabili Geysis.


Hleð inn...