Gola og Loki í svakaformi

12/02/2010 kl. 10:38
Loki frá Selfossi

Loki frá Selfossi

Í gær var 4-gangur í meistaradeild VÍS og er það með ólíkindum í hve góðu formi hrossin eru miðað við árstíma en þó bera sum hrossin þess merki að ekki er alveg búið að stilla þau af að fullu.

Af þeim hrossum sem ekki komust í úrslit þá fannst undirrituðum Hruni frá Breiðumörk koma vel fyrir en mistök urðu til þess að ekki komst hann áfram bæði stökk hann upp á yfirferðinni og svo voru tæknilegar villur í uppsetningu sem varð til þess að hann fékk ekki einkunn. Artemisia Bertus á Hersveini frá Lækjarbotnum áttu góða sýningu og er þar á ferðinni mjög góður knapi sem klárlega hefur sýnt að hún getur skipað sér í röð með þeim bestu og gaman er að fylgjast með því hve áferðarfallega og góða reiðmennsku þær stöllur í liði Auðsholtshjáleigu sýna. Jakob Sigurðsson kom fram með mjög álitlegan hest sem var að keppa í sinni fyrstu keppni en hann heitir Goggur frá Skáney og lentu þeir í 11.sæti.

Gola frá Þjórsárbakka

Gola frá Þjórsárbakka

Prýðishross voru í B-úrslitum en þar vann Náttar frá Þorláksstöðum sig upp en mér fannst hann vera betri í fyrra og er það einkum brokk og stökk sem er ekki eins gott og það var þá.

En tvö hross báru af að mínu mati í A-úrslitum en það voru þau Loki frá Selfossi og Gola frá Þjósárbakka. Loki var í sinni fyrstu keppi og ljóst er að þar fer hestur sem skipa mun sér meðal þeirra bestu í framtíðinni. Hann er samt enn aðeins óslípaður en með meiri reynslu mun það eflaust koma. Hef ég einnig trú á að Loki gæti sómt sér vel í B-flokki.

Gola var í góðum gír hjá Lenu Zielinski og eins og ég hef sagt í fyrri pistlum þá er hún frábær í að móta hross í frábæran höfuð- og fótaburðburð en samt má segja að meiri léttleiki mætti þó vera í reiðmennskunni þar sem hrossið fengi frjálsari tauminn.

A-úrslit
Sæti Nafn Lið Hestur Aðaleink.
1 Lena Zielinski Lýsi Gola frá Þjórsárbakka 7,47
2 Hulda Gústafsdóttir Árbakki / Hestvit Kjuði frá Kirkjuferjuhjáleigu 7,37
3 Sigurður Sigurðarson Lýsi Loki frá Selfossi 7,33
4 Hinrik Bragason  Árbakki / Hestvit Náttar frá Þorláksstöðum 7,30
5 Eyjólfur Þorsteinsson Málning Klerkur frá Bjarnanesi 1 7,23
6 Guðmundur Björgvinsson Top Reiter Hljómur frá Höfðabakka 7,03
7 Sigurður V. Matthíasson Málning Kall frá Dalvík 6,83
B-úrslit

Náttar frá Þorláksstöðum

Náttar frá Þorláksstöðum

B-Úrslit
7 Hinrik Bragason Árbakki / Hestvit Náttar frá Þorláksstöðum 7,13
8 Þorvaldur Á. Þorvaldsson Top Reiter Goði frá Hvoli 6,80
9 Valdimar Bergstað Málning Skáti frá Skáney 6,77
10 Sigurbjörn Bárðarson Lífland Líf frá Möðrufelli 6,73

Bylgja frá Dísarsstöðum

Bylgja frá Dísarsstöðum

11 Jakob S. Sigurðsson Frumherji Goggur frá Skáney 6,80
12 Árni Björn Pálsson Lífland Jötunn frá Hrappsstöðum 6,77
13 Daníel Jónsson Top Reiter Dáti frá Hrappsstöðum 6,70
14 Artemisia Bertus Auðsholtshjáleiga Hersveinn frá Lækjarbotnum 6,67
15 Ólafur Ásgeirsson Frumherji Líf frá Þúfu 6,63
16 Bylgja Gauksdóttir Auðsholtshjáleiga Grýta frá Garðabæ 6,60
16 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Auðsholtshjáleiga Frægð frá Auðsholtshjáleigu 6,60
18 Teitur Árnason Árbakki / Hestvit Frakkur frá Laugavöllum 6,57
19 Viðar Ingólfsson Frumherji Bylgja frá Dísarstöðum 2 6,50
20 Halldór Guðjónsson Lýsi Klaki frá Blesastöðum 6,07
21 Ragnar Tómasson Lífland Hruni frá Breiðumörk 0,00

Engar athugasemdir »

Engar athugasemdir hafa verið skrifaðar.

Skrifa athugasemd