Ágústínus í svakaformi

21/02/2010 kl. 14:10
Vígalegur á tölti

Vígalegur á tölti

Ágústínus frá Melaleiti er að komast í form en hann hefur verið í þjálfun hjá Daníel Jónssyni síðan í fyrra og var þá strax tekin stefnan á LM2010.

Ágústínus er sonur Kolfinns frá Kjarnholtum en Ágústínus er hæst dæmda afkvæmi Kolfinns með 8,93 fyrir hæfileika og 8,13 fyrir sköpulag.

Ganghæfileikar hestsins eru með þeim bestu sem þekkjast og er Kolfinnur þekktur fyrir afkvæmi með mikið gangrými og fer þar Ágústínus þar fremstur í flokki. Hann hefur hlotið 8,5 fyrir tölt, 9,5 fyrir brokk, 9,0 fyrir skeið og 9,5 fyrir vilja/geðslag.

Hver veit nema að hægt verði að gera enn betur í vor?

Töltið er eins og best verður en það er sennilega enginn alhliða hestur til með annað eins brokk. Hann hlaut 9,5 fyrir brokk en rýmið, spyrnan og svifið er alveg ótrúlegt. Eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan þá er hann um 1meter yfir jörðu og ferðinn á við fljótann skeiðhest.

Sannarlega á flugabrokki

Sannarlega á flugabrokki

Aðall íslenska hestsins er flugavekurð og vanntar það ekki á þessum bænum. Ágústínus er með vakrari hestum enda hlaut hann 9,0 fyrir skeið.

Kraftur og spyrna

Kraftur og spyrna

Flugaskeið

Flugaskeið

Ágústínus er fallegur hestur (8,13 fyrir sköpulag) og er hann bæði framfallegur, bolléttur og lofthár.

Framfallegur og bolléttur

Framfallegur og bolléttur

Það verður gaman að fylgjast með þeim félögunum í sumar.

Engar athugasemdir »

Engar athugasemdir hafa verið skrifaðar.

Skrifa athugasemd