Dugur frá Þúfu - frábær Klárhestur

16/03/2010 kl. 14:21
9,5 fyrir tölt

9,5 fyrir tölt

Stóðhesturinn Dugur frá Þúfu verður til afnota á suðurlandi í sumar.

Stefnan er tekin á B-flokk í vor og ljóst að þar fer sterkur klárhestur sem líklegast mun skipa sér meðal þeirra fremstu.

Dugur hefur hlotið mjög háan kynbótadóm 8,39 fyrir sköpulag þar af 8,5 fyrir háls, bak/lend og samræmi auk þess að hafa fengið 9,0 fyrir hófa. Fyrir kosti hlaut hann 8,56 sem klárhestur þar af 9,5 fyrir tölt og feg.reið og 9,0 fyrir brokk, vilja/geðslag og hægt tölt og hægt stökk.

Dugur er undan Sveini-Hervari frá Þúfu og Orradóttur. Dugur á eins sýnda alsystir sem hefur hlotið 8,14 í aðaleinkun.

Talsvert af topp hryssum hafa átt afkvæmi með Dug eins og Björk frá L-Tungu, Frigg frá Miðsitju og Dama frá Vestri-Leirárgörðum.

Eigandi Dugs er Danskur, Micael Lennartz og er stefnan að taka hestinn út til Danmerkur á næstu misserum, þannig að ekki er alveg ljóst hvort þetta verður síðasta sumarið sem Dugur stendur íslenskum ræktendum til boða.

Dugur er með mjög gott brokk (9,0)

Gott brokk 9,0

Gott brokk 9,0

Hann er mjög hágengur og taktviss á hægu

Fasmikill á hægu 9,0

Fasmikill á hægu 9,0

Engar athugasemdir

Engar athugasemdir hafa verið skrifaðar.