cforms contact form by delicious:days
Til athugunar vegna pantana
1. Tekið er við pöntunum á þar til gerðum eyðublöðum á heimasíðunni: http://www.foli.is
2. Við pöntun skal taka fram: Stóðhestur, eigandi/umráðamaður hryssu, kennitala, heimili, póstnúmer og símanúmer. Uppl. um hryssu, nafn, fæðingarnúmer og einstaklingsmerki. Allar breytingar skal tilkynna í síðasta lagi þegar hryssa er boðuð í girðingu.
3. Hryssur og folöld skulu vera einstaklingsmerkt.
4. Hryssur sem koma í girðingu hjá hestinum verða alfarið á ábyrgð umráðamanna þeirra á meðan þær eru í girðingunni.
5. Daglegt eftirlit verður með girðingunni en umráðamönnum hryssu óheimilt að vafra um girðinguna á tímabilinu án samráðs við umsjónarmann.
6. Mælt er með að umráðamenn gangi frá tryggingu á hryssunum og folöldunum áður en komið er í girðinguna.
7. Staðfestingargjald á pöntun kr. 27.000. Gjaldið er óafturkræft . Ef gjald þetta er ekki greitt fellur pöntunin sjálfkrafa niður.
8. Verði hross ekki sótt eftir að gangmáli líkur og eiganda/umráðamanni hefur verið tilkynnt það, þá er krafist geymslugjalds skv. gjaldskrá
9. Innifalið í staðfestingargjaldi er ein sónarskoðun og hagagjald fyrir eitt gangmál. Ef sóna þarf oftar, kostar hvert skipti kr. 4.000.- aukahagagjald er kr.9000.-
ATH. Ef skilyrðum er ekki fullnægt er varðar skráningu á eyðublöð verður umsóknin metin ógild.
Birt með fyrirvara um breytingar.
Hleð inn...