Í gær 21.júlí var sónað frá Álfi frá Selfossi. Skoðunin fór fram í Langholti en að henni komu Viðja Hrund Framkvæmdastjóri Hvítárhesta, Guðmundur “heppni” Guðmundsson Húskarl í Langholti, Páll Stefánsson Dýralæknir og hrossaræktandi og undirritaður Óðinn Örn.
Rekið ver heim í Langholt en stuttu áður var hesturinn tekinn úr hópnum og tekinn inn í Langholti. Smalamennskan gekk eins og í lygasögu en rólega var farið þar sem margar þessara hryssna eru ekki í neinu hlaupaformi. Framkvæmdir standa yfir í ræsagerð á Langholtsvegi og þurftu starfsmenn að taka tillit til okkar sem þeig gerðu. Eiga þeir þakkir skyldar fyrir það.
Álfur var settur í hryssurnar mánudaginn 22.júní og vantaði því einn dag upp á að hafa verið í hópnum í mánuð. Alls voru skoðaðar 31 hryssur en hægt var að staðfesta fyl í 20 þeirra sem er mjög gott eftir svo stuttan tíma. Hann er mjög frjósamur og hefur staðið sig vel allt frá því að hann var tryppi. Til gamans má geta þess að sónað var um daginn undan 2.vetra syni hans Hákoni frá Ragnheiðarstöðum og er hann eins og pabbi sinn mjög frjósamur. Enda er góð frjósemi einn af grundvallar þáttum búfjárræktar.











Hleð inn...